Skrifborð FLEXUS

Hæðarstillanlegt, með úrtaki, 1600x800 mm, silfurlitað/grátt

Vörunr.: 153237
  • Rafdrifin hæðarstilling
  • Vinnuvistvæn borðplata
  • Klemmuvörn
Hágæða skrifborð með rafdrifna hæðarstillingu og bogadregna borðplötu með snúrugötum. Skrifborðið er með T-laga undirstöðu með klemmuvörn og stillitappa undir fótunum. Það er knúið af tveimur kraftmiklum rafmótorum.
Litur borðplötu: Grár
154.912
Með VSK
7 ára ábyrgð

Vörulýsing

Búðu til vinnuvistvæna aðstöðu fyrir þig og vinnufélagana með rafstýrðum, hæðarstillanlegum skrifborðum úr FLEXUS húsgagnalínunni.

Skrifborðið er búið tveimur kraftmiklum rafmótorum sem knýja þrepalausa hæðarstillingu. Með því að ýta á hnapp geturðu stillt vinnuhæðina eins og þér hentar best. Þú getur líka bætt við vinnuvistvænni mottu sem þægilegt er að standa á og dregur úr álagi á fæturna þegar þú stendur við vinnuna.

Lögun borðplötunnar gerir þér mögulegt að sitja nær borðinu á meðan þú vinnur. Það gefur þér vinnuvistvænni líkamsstöðu og styður betur við handleggina. Bogadregin lögunin gerir þér einnig mögulegt að stilla skjánum upp til hægri eða vinstri við vinnuborðið án þess að þú þurfir að snúa þér til hliðar, sem getur verið óþægilegt fyrir kviðvöðvana.

Borðplatan er gerð úr viðarlíki og er með slétt, rispuþolið og auðþrífanlegt yfirborð. Snúrugötin auðvelda þér að koma í veg fyrir að snúrur og vírar flækist fyrir á vinnuborðinu. T-laga stálrammi borðsins er duftlakkaður í gráum lit. Borðið er búið klemmuvörn sem nemur hindranir þegar borðið er hækkað eða lækkað og bregst strax við og stöðvar hreyfingu þess. Hún verndar þannig bæði skrifborðið og annan skrifstofubúnað og lengir líftíma þeirra. Stillitappar tryggja að skrifborðið standi stöðugt á ósléttum gólfum.

Skjöl

Vörulýsing

  • Lengd:1600 mm
  • Breidd:800 mm
  • Þykkt borðplötu:22 mm
  • Hámarkshæð:1175 mm
  • Lögun borðplötu:Bylgjulaga
  • Fætur:Rafknúin hæðarstilling
  • Lágmarkshæð:705 mm
  • Lyfting við hverja dælu:470 mm
  • Lyftihraði:30 mm/sek
  • Litur borðplötu:Grár
  • Efni borðplötu:Viðarlíki
  • Upplýsingar um efni:Kronospan - 0164 PE Anthracite
  • Litur fætur:Silfurlitaður
  • Litakóði fætur:RAL 9006
  • Efni fætur:Stál
  • Fjöldi mótora:2
  • Hámarksþyngd:80 kg
  • Ráðlagður fjöldi fólks við samsetningu:1
  • Áætlaður tími fyrir afpökkun og samsetningu/einstaklingur:20 Min
  • Þyngd:38,3 kg
  • Samsetning:Ósamsett